Sveindís Jane

Skilmálar

SKILMÁLAR FYRIR VEFVERSLUN WWW.SVEINDISJANE.IS

 

Almennar upplýsingar um seljandann

Seljandi á vörum á www.sveindisjane.is er framleiðslufyrirtækið og útgefandinn Loki ehf. (kt.: 640297-3019 með vsk nr. 53951), með starfsstöð að Sæviðarsundi 34, 104 Reykjavík (hér eftir vísað til „Loki ehf.“ eða „verslunarinnar“).

 

Verð á heimasíðu www.sveindisjane.is

Loki ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðum á síðunni fyrirvaralaust. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um að þær kunni að vera rangar og/eða að um prent- eða innsláttarvillu sé að ræða. Loki ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir ef verslunin telur að uppgefnar forsendur síðunnar hafi verið rangar.

 

Afhendingartími og sendingarkostnaður

Vörur til afhendingar eru afhendar næsta virka dag í verslun Heimavallarins nema annað sé tekið fram í vörulýsingu eða samið sé um annað. Hafi viðskiptavinur valið að sækja pöntun í verslun Heimavallarins við pöntun þarf að sækja pöntunina innan 30 daga frá því að pöntun var gerð. 

Vörur til afhendingar með Póstinum eru afhendar Póstinum innan tveggja virkra daga og það sama á við um dropp, en afgreiðslutími pantana fer að öðru leyti eftir því hvar viðskiptavinur er staðsettur í heiminum. Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslu sendingarkostnaðar og bætist slíkur kostnaður við í greiðsluferli á síðunni. 

Um vörur í forpöntun gildir sú áætlaða útgáfudagsetning sem kom fram í vörulýsingu. Athugið að ófyrirséðar tafir geta orðið á afhendingu forpantaðra vara sem veldur því að áætluð útgáfudagsetning breytist frá því að pöntun var upphaflega gerð.

 

Skilaréttur

Hægt er að skila vöru allt að 14 dögum eftir að gengið hefur verið frá kaupum. Til að hægt sé að skila vörunni þarf hún að vera í upprunalegu ástandi, í plasti og bera allar þær merkingar sem hún kann að hafa borið þegar hún var afhent kaupanda. Loki ehf. áskilur sér rétt til að taka ekki við vöru sé talið að hún sé ekki í upprunalegu ástandi. Ýmist er hægt að fá vörunni skipt eða fá hana að fullu endurgreidda. 

Til þess að nýta skilarétt þarft þú að tilkynna okkar um ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu, t.d. með tölvupósti á netfangið loki@sveindisjane.is innan 14 daga frá þeim tíma er gengið var frá kaupum. Ef þú óskar eftir endurgreiðslu munum við endurgreiða þér vöruna að fullu, en sendingarkostnaður fæst þó ekki endurgreiddur.

 

Vinnsla persónuupplýsinga

Loki ehf. leggur sig fram um að gæta þess að farið sé með persónuupplýsingar viðskiptavina í samræmi við gildandi persónuverndarlög. 

Í þeim tilgangi að geta afgreitt pantanir sem berast í gegnum vefverslun er Loka ehf. og þess sem annast dreifingu fyrir Loka ehf. hverju sinni nauðsynlegt að vinna með upplýsingar um nafn, heimilisfang, netfang, greiðsluupplýsingar og vörukaup viðskiptavina. Vinnsla þessi byggist á samningi aðila. 

Loki ehf. áskilur sér rétt til að nýta tölvupóstfang viðskiptavina til þess að hafa samband við þá í markaðslegum tilgangi, s.s. til að upplýsa viðskiptavini um nýjar útgáfur á vegum Loka ehf. Það sama á við um aðra sem hafa skráð sig á póstlista verslunarinnar. Vinnsla þessi byggir á lögmætum hagsmunum og geta viðskiptavinir hvenær sem er afskráð sig af póstlista. 

Loki ehf. deilir ekki upplýsingum um viðskiptavini eða aðra þá einstaklinga sem unnið er með persónuupplýsingar um til þriðju aðila, nema slík miðlun byggi á lagaskyldu eða dómsúrskurði. Þá eru upplýsingarnar aðeins varðveittar svo lengi sem það er málefnalegt með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar. 

Þeir einstaklingar sem Loki ehf. vinnur persónuupplýsingar um eiga rétt á að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar verslunin vinnur um viðkomandi, afrit af upplýsingunum og eftir atvikum rétt til að fá upplýsingunum eytt. Þá hafa einstaklingarnir eftir atvikum rétt til að fá upplýsingar leiðréttar og til að andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum. Óski viðskiptavinir eða aðrir eftir að nýta sér þessi réttindi á grundvelli persónuverndarlaga vinsamlegast hafið samband í gegnum loki@sveindisjane.is. Þá skal tekið fram að sé einstaklingur ósáttur við það hvernig Loki ehf. vinnur með persónuupplýsingar viðkomandi skal hann eiga rétt til að senda kvörtun til Persónuverndar. Sjá nánari upplýsingar á www.personuvernd.is.

 

Réttur að efni í vefverslun

Efni það sem birt er í vefverslun www.sveindisjane.is kann að vera háð hugverkarétti Loka ehf. eða þriðja aðila. Öll notkun á slíku efni er háð samþykki Loka ehf., ef frá er talin takmörkuð notkun í einkaþágu í samræmi við gildandi lög.

 

Ágreiningur

Komi upp ágreiningur milli verslunarinnar og viðskiptavina í tengslum við kaup í gegnum vefverslun má bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Sjá nánari upplýsingar á www.kvth.is.